Viktoría Ísold

Njóttu dagsins

03.06.2008 19:49:55 / arna lisbet

30 dagar í brúllöp :)

Hæ elskur!

Þvílik helgi yndisleg er enn að melta hana..

 Föstudagur: Fékk að vita að ég náði öllu prófunum og fæ að útskrifast 13. júní

 Laugardagur: Gerði tilraun til að fara í sund með familiunni en var gómuð af vinkonum mínum á járnbrautarstöðinni og viðtók heljarinnar gæsun – sund-sauna-piknik-kampavínsnudd- gæsin þurfti svo að láta gangandi vegfarendur taka mynd af sér í allavegana stellingum- karokee “ girls just wanna have fun með Cindý Lauper- hittum svo óvænt nunnur sem áttu systur í Hafnafirði og þær lofuðu fyrirbænum-svo dinner á Michelles – svo var dansað fram á rauða nótt á Apollo.

Sunndagur: Vaknaði “hress” klukkan tíu of fór að undirbúa barnaafmæli. Viktoría búin að bjóða ættingjum og vinum í súpu og kaffi.

 ... og hvað haldið þið að ég hafi afrekað í kvöld sett myndir inn á babyland. Enjoy

Er að vinna að kjólnum og Merja er að hjálpa mér fengum fötin fyrir Tomma í dag senst allt going accordinig to plan so far. Ég er alveg að deyja úr spenningi takk fyrir alla hjálpina og þetta yndislega motto “ Arna, þetta reddast allt saman hafðu ekki áhyggjur”

Sjáumst í næstu viku har det bra

 The bride to be

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

22.05.2008 12:28:31 / arna lisbet

Þóra 5.11 er þinn nafnadagur :)

Gleðilega Eurovision stund í kvöld elskurnar

Víva Suomi komst áfram enda nett rokkað og flott lag

Vona að Eurobandið komist áfram eiga allavega mitt atkvæði


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.05.2008 10:56:55 / arna lisbet

Lilja

Til hamingju með nafnadaginn í dag 20. maí 2008 :)

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.05.2008 18:58:01 / arna lisbet

ný sturta

Tvö próf eftir þetta er að hafast..

 Haldið að Tommelíus elskan mín hafi ekki fengið pípara í vikunni til að koma og  setja nýja sturtu í saununa. Nú getur maður bara stillt hitastigið í sturtunni að eigin vild. Haldið að sé, annar eins luxus hefur nú bara ekki fundist á mínu heimili síðan við fluttum inn.

 Odda og Guðmar komu í helgarfrí til Helsinki síðustu helgi. Voru svona líka heppinn með veður og tóku borgina með trompi.  Voða gaman að sjá þau. Fórum með þeim út að borða og túristuðumst aðeins um yndislegu borgina okkar. Svo komu þau í hrendýrasteik ala tuomas og við fórum með þau á ströndina “okkar” í Vuosaari.

 Þóra brúðarblöðin og co komin í hús. Ástarþakkir þú ert yndi. Náði ekki að svara í dag en heyrumst á morgun.

 Góðar stundir

 The bride to be ;)

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.05.2008 11:17:41 / arna lisbet

bongóblíða í Helsinki

.. bara svona ef ykkur langaði að vita það. 20 stiga hiti og sól síðan á fimmtudaginn. sumarið er komið I love it.

Fórum á ströndina í gær og borðuðum morgunmatinn út garði í morgun.. ef þetta léttir ekki lundina þá veit ég ekki hvað.

Hvernig hafið þið það??

Knúss múss

Thora hvernig var í Saksa ( Þýskaland á finnsku :) )

» 15 hafa sagt sína skoðun

15.04.2008 07:16:54 / arna lisbet

the wedding planner

Elsku Jóna Björk frænka innilega til hamingju með stórafmælið í dag!

 Hvernig er það á sumrin á Íslandi eru ekki fleiri flugfélög en flugleiðir og Express sem fljúga yfir. Mig rámar eitthvað í British Airways.

 Ég var að tala við Lorenu vinkonu mína í Brasilíu um helgina og hana langar svo að koma í brúðkaupið. Við vorum að skoða beint flug frá Orlando til Keflavík og kræst  ódyrasta sem ég fann var 1500 dollara og það fór alveg uppí 2300 dollara. Svo kostar 1000 dollara að fara frá Brasiliu til Bandaríkjana. Kostar hana hátt í 3000 dollara að koma þannig að mér finnst 365 evrur ekki dýrt fyrir okkur á mann að koma til Íslands.

 Annars er kjóllinn enn á teikniborðinu og ég eiginlega alveg búin að ákveða hvernig hann á að vera.  Svo er ég að skoða nærföt og skó þessa dagana :9

 Eruð þið búin að fá boðskortin? megnið er farið í póst :)


» 13 hafa sagt sína skoðun

10.04.2008 07:40:57 / arna lisbet

Gullkorn dagsins

Jákvæðni er valkostur stendur í fallegri bók sem Liljan gaf mér í afmælisfgjöf. Mamma stakk að mér miða með þessum gullkornum í síðustu ferð og ég var að finna hann núna í vortiltektinni.

... og já enn og aftur til hamingju með allar ólétturnar frænkur, systur og vinkonur :)



Mundu eftir að taka inn vítamínin þín!

 

  • Borðaðu hollan mat

  • Dáðstu að manneskjunni sem þú ert

  • Farðu vel með þig og þína

  • Lifðu í gleði

  • Hlæðu reglulega

  • Lifðu í núinu

  • Njóttu lífins og öllu sem lífið hefur uppá á að bjóða

  • Stundaðu einhverja hreyfingu á hverjum degi

 

…. og mundu að slaka á og borða gott súkkulaði

Hafið það gott í dag.

P.s. 70 boðskort fóru í póst í dag :) en eftir að gera 10 í viðbót þar sem pappírinn var búinn í miðjum klíðum og uppseldur  í Stokkmann. En það er verið að panta meira :)


» 11 hafa sagt sína skoðun

08.03.2008 12:39:16 / arna lisbet

Ég tóri enn...

Var í tessum töluðum orðum að skila fyrsta uppkasti af ritgerðinni for evaluation til beggja leiðbeinenda minna, + kennara míns + annars kennara sem metur tungumálið  + bekkjarfélaga míns sem mun oppona fyrir mig eftir kynningu. Þetta er að hafast... naesta vika veður crasy eftir það kemur Lilja sys og svo get ég farið að njóta brúðkaups undirbúningsins..

En gleðilegan alþjóðlegan konudag allar yndislegur stelpur og konur hvað sem þið kjósið að vera... yes 8. mars er alþjóða baráttudagur kvenna..

Í Íslenskaskólanum á miðvikudaginn var einn nemandi að telja hvað það væru margir strákar í bekknum og hvað margar stelpur. Þar sem ég var talin með í fjölda stelpnanna gerði einn annar nemandi athugasemd " Nei, það eru bara fimm stelpur í bekknum en ekki sex,  Arna er ekki stelpa hún er kona" 

Mér brá smá finnst ég alltaf bara vera stelpa og skvísa...en er ég ekki bara orðin kona er að halla í þrítugt orðinn mamma og verðandi eiginkona og frú eftir nokkra mánði :)
 
Til að pústa og safna kröftum fyrir átök næstu viku ætlum við familian að gera okkur daga mun. Fengum gjafabréf.. nótt á Hilton í Helsinki .. þar er víst æðisleg spa center og við erum að leggja í hann.

Sendið mér Heklu eldfjallaorku í næstu viku.. Það vantar alveg eldfjöllinn í Finnlandi

» 20 hafa sagt sína skoðun

21.02.2008 12:39:57 / arna lisbet

Elsku Liljan bloggar frá Dene!!

Allt gott ad fretta fra Dene! Var ad renna nidur ljufum spelthafragraut (fann ekki trøllahafrana) sem var reyndar afar ahugaverd reynsla. Fer sennilega betur bara med surmjolk en sodid!! Grisku gydjurnar herna elda eins og vindurinn og sænsku gefa ekkert eftir. Se litid af teirri norsku tvi kærastinn hennar kom i gær og hun er buin ad vera inni i herbergi sidan...!!
Eg ætladi ad virkja siduna mina en tad gengur ekki svo her er bloggfærslan sem eg skrifadi i fyrradag (ta vitid tid meira um húsvini mina herna):

Ég var soldið niðursokkin í bókina A long way down þegar ég hoppaði upp í
Metro á leið minni til að hitta stelpurnar á Hovedbane. Þeir sem þekkja sig
í Köben vita að Metro fer ekki þangað..ojæja, góð byrjun!
Ég hitti stelpurnar (Þórey og Kötu sem voru að klára sitt verknám í
öldrunarhjúkrun) á Kongens Nytorv í staðinn og þaðan tókum við leigubíl heim
til mín á Tuborgvejen. Ég bý í yndislegu múrsteinshúsi sem mér er sagt að sé
sennilega meira en 100 ára gamalt. Herbergið mitt er í risinu og það er
dáldið skemmtileg lofthæð í herberginu. Þar sem ég er ekki dvergvaxin og
sennilega aðeins yfir meðalhæð er ég eiginlega búin að vera bogin og bugtuð
þvers og kruss milli þess sem ég rek hausinn í vegginn þegar ég misreikna
mig. Mér finnst þetta samt svo hrikalega krúttað eitthvað að þetta böggar
mig ekkert. Ég tók mig líka til og endurskipulagði herbergið svo ég get núna
gengið um upprétt, svona að mestu. Það eru tveir gluggar í loftinu sem ég
get skriðið út um, ef kviknar í og þar eru engar gardínur sem geta flækst
fyrir mér þegar ég flý eldinn. Gardínulaust herbergi er algjör snilld því
það birtir svo snemma að mér finnst ekkert mál að hoppa fram úr á morgnana.
Ég stíg úr rekkju og horfi yfir trén og yfir á psykiatrisk skadestue sem er
hérna hinu megin.
Og til að henda rómantískum blæ yfir vistaverur mínar er húsið í lokuðu
umhverfi. Mér líður soldið eins og á heimavist fyrir einhverjum tugum ára,
þar sem hliðunum er lokað kl 20! Ég hef nú verið að koma aðeins eftir það
heim á kvöldin og líður dáldið eins og glæpamanni þegar ég vippa töskunni
minni yfir grindverkið, fleygi mér í malbikið og mjaka mér undir...eins gott
að maður bæti ekki á sig hérna úti, þá mun ég klárlega festast milli steins
og sleggju, bókstaflega,) Annars held ég að einhver skemmti sér konunglega
yfir aðförunum þar sem myndbandseftirlit er þarna um allt svæðið!
En ég bý ekki ein. Með mér á efri hæðinni er Michelle, frábær stelpa frá
Noregi. Hún er ótrúlega hress og skemmtileg og minnir á íslensk sveitafólk
að því leyti að það er ekki til neitt sem heitir vandamál. Hún er 26 ára og
í dag kom kærastinn hennar sem verður hérna í mánuð. Hann er Norsari líka,
lærir list í Dusseldorf og er nokkuð yngri..þori ekki að skjóta á aldurinn.
Á neðri hæðinni, inn af stofunni búa tvær gyðjur frá Grikklandi. Ég átti
dáldið erfitt með nöfnin þeirra til að byrja með og vísa því í þær sem
Monopoly og Melónu. Monopoly er eins og karakter úr My big fat Greek
wedding. Hárið, línurnar og gestrisnin alveg x10! Melóna er dáldið
hlédrægari en er að koma úr skelinni. Hún er ekki alveg eins ýkt týpa en
jafn harðdugleg og Monopoly. Á laugardaginn heldu þær matarboð fyrir 10
manns (við stelpurnar vorum inn í þessari tölu). Það var örugglega 7 réttað,
alls konar forréttir og ég veit ekki hvað og hvað! Geggjað. Ég hef ekki
hugmynd um hvað þær eru gamlar en Monopoly bíður pípari heima og Melóna á
líka mann sem ég hef aðeins séð hliðarmyndina af þar sem hún er með
stærðarinnar veggfóður af þeim hjúunum í innilegum stellingum á tölvunni
sinni(!) Eitthvað sem mér fannst skjóta dáldið skökku við hlédrægu týpuna
sem ég taldi hana vera. Píparinn og hinn gríski gaurinn koma hingað yfir
páskana með 20kg af mat (á mann) sem frúrnar hafa pantað.
Þær elda eins og vindurinn og byrja aldrei á neinu án þess að ganga fyrst á
línuna og bjóða öllum með sér. Þetta er líka ekki neinar samlokur í grilli
hjá þeim, þær byrja um 7 að elda og borða milli 21 og 22..þegar ég er að
fara sofa, ) ..og svo reykja þær engan Marlboro, nei þær rúlla sjálfar! Hef
ekki séð svona tóbak í poka síðan afi reykti pípu Þá eru sænskar
stelpur fluttar inn í herbergið inn af eldhúsinu niðri.
Rebekka er mjög flippuð týpa, klæðir sig samkvæmt tískunni 1940 með gleraugu
sem ég hefði getað svarið fyrir að væru af ömmu hennar. En svo er einhver
krúttfílingur í henni þegar hún dregur upp veskið sitt eða símann en hún er
með stærðarinnar tuskudýr hangandi úr hvoru tveggja. Johanne er líka mjög
fín og minnir á álf, svona smábeinótt sem hún er og alltaf brosandi (á
reyndar við Rebekku líka). Ég hef hangið soldið með þeim hérna og líst mjög
vel á þær. Ég átti reyndar mjög bágt með að trúa Michelle þegar hún sagði að
Rebekka væri 31 og Johanne 27..ég trúi reyndar aldri Johanne en að Rebekka
sé 31 er eitthvað alveg út í hött, hélt að hún væri jafngömul mér eða yngri!
..kannski þýðir þetta bara að ég sé að eldast.
Oftast finnst mér fólk mér yngra vera jafngamalt mér en fólk ári eldra eða
meira vera MIKLU eldra..ekki lengur!

Vá! Tetta er alveg slatti!

KNUSAR TIL ALLRA,)

» 2 hafa sagt sína skoðun

15.02.2008 09:43:02 / arna lisbet

13.febrúar 2008

Til hamingju með afmælið sys. Er búin að vera að reyna að hringja í þig en þú bara svarar ekkert<img src=" src="/images/smileys/icon_wink.gif" />.Hvernig var svo veislan ?? Fóruð þið í göngutúr??

» 6 hafa sagt sína skoðun

31.01.2008 19:57:41 / arna lisbet

myndir

er ad hlada inn myndum á babyland ole hyvää

» 7 hafa sagt sína skoðun

29.01.2008 20:19:40 / arna lisbet

ams kvedjur

Erna á afmaeli í dag innilega til hamingju elsku skvís. Erna er búin ad kaupa sér kjól fyrir brúdkaupid mitt  + í kladdann..

En tid??Búinn ad ákveda í hverju tid aetlid ad vera?? 


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.01.2008 14:11:19 / arna lisbet

howdý!

Lilja hvernig gengur hjónabandsælan??

Er búin að vera í vinnunni í allan dag að skrifa lokaverkefnið. Ætla nú að drífa mig heim og gera mig sæta og fína því við erum að fara í útskriftapartý til Áslaugar sem er orðinn master í rússnesku ekkert smá flott.

Viktoría búin að vera heima í 3 daga í vikunni með leikskólapest og nú er hún búin að smita okkur voi voi en ég er að reyna að henda henni útum gluggann og það test bara ágætlega.

... og elsku Arska hundurinn hennar Aisku dó í gær. En hann var orðinn svo gamall greyið 14 hundaár en 90 mannaár.  

En svona er lífið.

Arnie


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.01.2008 13:22:44 / arna lisbet

Dansað á ísnum og allt á kafi í snjó

Sorry elskurnar hvernig get ég gert ykkur þetta :(! 

Gleðilegt nýtt ár allir og takk fyrir að vera til. Þið eruð öll yndisleg og meiriháttar.:) Já ég er sammála þér stóra sys taka vel á móti nýju ári og vera jákvæður. Ég er að lesa munkinn sem seldi sportbílinn sinn og ég er alveg heilluð af þessari bók og hvet alla til að fá sér göngutúr á næsta bókasafn eða bókabúð og fá sér eintak. 

 Af okkur mini icefin familíunni er allt gott að frétta.. Ánægð með fríið á Íslandi og ánægð að vera komin tilbaka aftur og vera komin í sína rútínu. Áramótin tókust vel fengum fólk í mat og svo var skotið upp um miðnætti álíka mikið og ein ÍR flugeldasýning. Það toppar ekkert flugeldana á Íslandi en þetta var alveg nóg fyrir mig. Sellóstína er búin að vera í Helsinki og ný farin heim krúsídullan sú arna .. Um helgina fórum við með safnklúbbnum okkar á sýningu í Tennispalatsi. Þetta var mjög flott ljósmyndasýning en konan hafði tekið mjög spes myndir af börnunum sínum í gegnum árin. Svo fórum við út að borða í spænskítalskan stað svona pínkupons staður mammamíapizzería andi í opna eldhúsinu og alveg hrikalega góður matur. Á sunnudeginum fór svo saumaklúbburinn og fjölskyldur í þjóðgarðinn Núksíó sem er rétt fyrir utan Hki. Það var svo fallegt þar, við kveiktum eld, grilluðum pylsur og drukkum heitt kakó. Þarna var vatn og margir að skauta. Svo dönsuðum við á ísnum á leiðinni tilbaka. Alger orkusprengja að fara svona útí náttúruna.  

Viktoría rúsína byrjuð á leikskólanum aftur og fannst voða gaman að hitta vini sína. Allir svo fegnir að sjá hana aftur eftir langt frí enda er hún í algjöru uppáhaldi hjá öllum þó ég segi sjálf frá.:lol: Nú er aðal málið að fá að smella rembingskossi á mömmu og pabba beint á munnin ( auðvitað verður maður að fá að gera eins og mamma og pabbi gera:lol::lol: ). Þegar við ætlum að kissa hana á kinnina tekur hún um höfuðið á okkur og snýr honum beint að sér svo hún geti smellt kossi beint á munninn.  Svo erum við að reyna að venjast koppinum eða öllu heldur barnasetunni á klósettinu því hún hleypur alltaf af koppinum. Stundum hleypur hún til mín og slær á bossann á sér og segir ýmist kúka á móðurmálinu eða kakka á föðurmálinu er orðin svo bælingúar strax,  svo hleypur hún í átt að klósettinu en yfirleytt stoppar hún á miðri leið og setur upp svip segir “allt búið” senst búin að kúka og náði ekki á klósettið obsídeisi þá hleypur maður bara aftur inn í stofu að leika.  

Jæja dugar þetta í bili ég fer svo að setja inn myndir við tækifæri.  

Ykkar frábæra,

Arna Lísbet;)


» 17 hafa sagt sína skoðun

14.12.2007 07:43:55 / arna lisbet

er allt í key?

Er allt í lagi með ykkur á Íslandi, eruð þið nokkuð fokinn um veður og vind??

» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11